Hvernig bókun í gegnum Sóley virkar, og hvað gerist þegar eitthvað fer úrskeiðis
Fyrir hótel sem tengjast í gegnum eigið bókunarkerfi.
1. Áður en bókað er
Gesturinn er í Claude (eða öðrum gervigreindaraðstoðarmanni) að skipuleggja ferð. Aðstoðarmaðurinn spyr Sóley um gistingu sem hentar óskum gestsins: staður, dagsetningar, fjöldi, verðbil, aðbúnaður. Sóley skilar þeim hótelum sem passa. Engin röðun gegn greiðslu er í boði; enginn kaupir sér sæti ofar. Því meiri og betri upplýsingar hótelið leggur inn um sig og herbergin, þeim mun oftar passar það við það sem gestir spyrja um.
2. Framboð og verð
Framboð, verð og skilyrði (til dæmis lágmarksdvöl) koma úr bókunarkerfi hótelsins. Sóley selur ekkert úr eigin lager og heldur engu framboði; bókunarkerfi hótelsins segir já eða nei. Verðið sem gesturinn sér er verð hótelsins.
Rétt áður en gesturinn er sendur í greiðslu spyr Sóley kerfið aftur; sé herbergið horfið, eða náist ekki samband við kerfið á því augnabliki, er bókuninni hafnað í stað þess að taka hana.
3. Upplýsingar um gestinn
Áður en bókun er kláruð safnar aðstoðarmaðurinn nafni, netfangi og símanúmeri gestsins, les upplýsingarnar aftur fyrir gestinn og Sóley sannreynir að netfangið og símanúmerið séu gild. Bókun klárast ekki með ógildum tengiliðaupplýsingum.
4. Greiðsla
Gesturinn greiðir hótelinu, í gegnum greiðslulausn hótelsins sjálfs, á sama hátt og bókun af vef hótelsins. Sóley sér aldrei kortanúmer og heldur aldrei á fjármunum. Hótelið er söluaðili og gefur út kvittun.
Ef greiðsla er ekki kláruð innan 30 mínútna fellur bókunin niður, herbergið fer aftur í framboð, ekkert er skuldfært og engin þóknun myndast.
5. Staðfesting
Þegar greiðsla er staðfest skrifast bókunin inn í bókunarkerfi hótelsins sem greidd og tryggð bókun, með tilvísunarnúmeri Sóleyjar. Hótelið sendir sína eigin staðfestingu til gestsins, eins og fyrir aðrar beinar bókanir. Gesturinn fær auk þess tilvísunarnúmer Sóleyjar og yfirlit yfir bókunina frá Sóley. Gesturinn mætir með staðfestingu hótelsins.
6. Breytingar
Breyting á dagsetningum eða fjölda er gerð með afbókun og nýrri bókun. Gesturinn getur beðið aðstoðarmanninn um það eða haft samband við hótelið beint.
7. Afbókanir og endurgreiðslur
Afbókunarskilmálar hótelsins gilda, þeir sömu og gilda um bókanir af vef hótelsins, og gesturinn sér þá áður en hann bókar. Gesturinn getur afbókað í gegnum aðstoðarmanninn eða hjá hótelinu. Sóley sendir afbókunina inn í bókunarkerfi hótelsins. Endurgreiðsla, ef skilmálar kveða á um hana, fer í gegnum greiðslulausn hótelsins. Þóknun Sóleyjar fellur niður við fulla endurgreiðslu og reiknast af því sem hótelið heldur eftir við hlutaendurgreiðslu.
8. No-show
Ef gestur mætir ekki gilda skilmálar hótelsins eins og um bókun af vef hótelsins. Þóknunin fylgir peningunum: af fyrirframgreiddri bókun heldur hótelið eða endurgreiðir samkvæmt eigin skilmálum og þóknunin reiknast af því sem hótelið heldur eftir; no-show sem hótelið innheimtir ekki ber enga þóknun; no-show gjald sem hótelið innheimtir ber þóknun af því gjaldi. Hótelið getur merkt no-show í Sóley til eigin skráningar.
9. Spurningar og vandamál gestsins
Gesturinn getur sent hótelinu skilaboð í gegnum aðstoðarmanninn og hótelið svarar úr sínu Sóley-innhólfi. Gesturinn fær einnig símanúmer og netfang hótelsins. Ágreiningur um greiðslu (til dæmis endurkröfur) fer í gegnum hótelið og greiðslulausn þess, eins og í dag.
10. Þóknun og reikningar
Tíu prósent af því sem hótelið innheimtir fyrir bókun sem verður til í gegnum Sóley, ekkert annað: engin uppsetningargjöld, engin mánaðargjöld, engin lágmarksbinding. Reikningur mánaðarlega, virðisaukaskattur leggst ofan á. Full endurgreiðsla ber enga þóknun; hlutaendurgreiðsla lækkar hana hlutfallslega. Hótelið fær sundurliðun á hverja bókun.
11. Gögn
Sóley geymir aðeins þær upplýsingar sem bókunin þarf. Persónuupplýsingar eru gerðar ópersónugreinanlegar eftir lögbundinn geymslutíma bókhaldsgagna (sjö ár); gestur getur krafist eyðingar. Vinnslusamningur er í boði fyrir tilraunaverkefnið og listi yfir undirvinnsluaðila afhentur sé þess óskað.
12. Ef Sóley hættir
Ekkert í kerfum hótelsins brotnar. Bókanirnar eru í bókunarkerfi hótelsins; rásin þagnar.